Útgáfan Tunga er kennd við samnefnt hús á Seyðisfirði. Húsið var reist úr norskum kjörviði af yfirsmið gamla skólahússins þar í bæ árið 1907. Hjónin Steinn Stefánsson skóla- og kórstjóri (1908-1991) og Arnþrúður Ingólfsdóttir sagnakona (1916-1964) bjuggu í Tungu nokkra áratugi kringum miðbik síðustu aldar. Þau áttu fimm börn sem ólust upp í þessu húsi:
Heimir Steinsson prestur og útvarpsstjóri f. 1937, d. 2000.
Iðunn Steinsdóttir rithöfundur, f. 1940.
Kristín Steinsdóttir rithöfundur, f. 1946.
Ingólfur Steinsson tónlistarmaður, f. 1951.
Stefán Steinsson læknir, f. 1958.

 


Útgáfan Tunga - Mánastíg 2 - Hafnarfirði - Sími: 565 2818 - Netfang: tunga@ismennt.is - Vefslóð: http://tunga.ismennt.is