![]() |
||
| Ingólfur Steinsson er höfundur þeirra bóka sem útgáfan Tunga hefur gefið út. Hann er einnig höfundur laga og flestra texta á geisladisknum Kóngsríki fjallanna. Ingólfur fæddist á Seyðisfirði og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og BA-prófi í sögu, ensku og almennri bókmenntasögu frá Háskóla Íslands. Hann lauk einnig námi í uppeldis- og kennslufræði við Háskóla Íslands og framhaldsnámi í bókmenntum og sögu við New College of California í San Fransisco. Ingólfur hefur leikið tónlist frá unga aldri. Hann stofnaði hljómsveitina Þokkabót ásamt þremur félögum og æskuvinum. Þokkabót sendi frá sér fjórar hljómplötur á 8. áratugnum og urðu mörg lög þeirra félaga allkunn. Árið 1995 kom út geisladiskur með safni laga hljómsveitarinnar. Ingólfur hefur einnig samið tónlist og texta fyrir ýmsa aðila. Nýlega gaf hann út geisladiskinn Kóngsríki fjallanna. Ingólfur starfaði sem kennari um árabil, fyrst í grunn- og seinna framhalds- skólum. Þá var hann skólastjóri í Holti í Önundarfirði í nokkur ár. Hann er nú ritstjóri hjá Námsgagnastofnun. |
|
|
|
|
||